eyjan.is

Fimmtudagur 24.03.2011 - 21:20 - Ummæli ()

Íhaldsfrúin á RÚV

Orðið á götunni er að illa gangi að setja flokkspólitískan stimpil á fréttastofu Ríkisúvarpsins.

Þannig nefnir hirðin í kringum fyrrverandi seðlabankastjóra fréttastofuna ekki á nafn án þess að minnast á Samfylkinguna í leiðinni. Aðrir líta silfrið öðrum augum, svo sem Þráinn Bertelsson alþingismaður sem skrifaði þetta á fimmtudagskvöld:

„Íhaldsfrúin sem gefur sig út fyrir að vera þingfréttamaður Ríkissjónvarpsins sló öll met í kvöld þegar hún sagði sorgbitin að stjórnlagaráðið hefði „veikt“ umboð því að meirihluti Alþingis stæði ekki að baki því. …stjórnlagaráð var samþykkt með 31 atkvæði gegn um 20, nokkrir sátu hjá og nokkrir voru fjarverandi. Þetta er um 60% meirihluti – sem er allt annað en „veikur“.“

Orðið á götunni er að þessir þversagnakenndu merkimiðar séu einmitt einn helsti styrkleiki fréttastofunnar.

«
»