eyjan.is

Miðvikudagur 16.02.2011 - 11:34 - Ummæli ()

Nýr aðstoðarmaður Katrínar

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra hefur fengið nýjan pólitískan aðstoðarmann. Á braut hverfur Arnar Guðmundsson, sem hefur verið ráðinn til Fjárfestingastofu, en þar starfaði hann einnig á árum áður. Í hans stað kemur Kolbeinn Marteinsson, sem lengi hefur rekið auglýsingastofuna Skaparann.

Orðið á götunni er að Katrín leiti ekki langt yfir skammt að hinum nýja aðstoðarmanni, en hann er æskuvinur hennar og skólabróðir úr Kópavogi.

«
»