Miðvikudagur 09.02.2011 - 21:20
- Ummæli ( )
Sagt upp vegna gagnrýni
Orðið á götunni er að uppsögn Ingimars Karls Helgasonar á fréttastofu Stöðvar tvö eigi sér rætur í gagnrýni hans á fréttastofuna.
Síðastliðinn föstudag hélt Ingimar erindi á Jafnréttisþingi sem titlað var „Stones eða Bítlarnir – þröngsýni og sjálfvirkt fréttamat“. Þar fjallaði hann um kynjahlutföll í fjölmiðlum sem eru, eins og alkunna er, helmingi þjóðarinnar ekki í hag.
Í erindinu gagnrýndi Ingimar fyrrverandi vinnustað sinn harðlega, ekki síður en aðra fjölmiðla. Orðið á götunni er að þar sé ástæðu fyrirvaralausrar uppsagnar hans á fréttastofu Stöðvar tvö að finna.