eyjan.is

Föstudagur 27.08.2010 - 21:18 - Ummæli ()

Ömmi og Oddný inn, Gylfi og Ragna út

Rikisstjorn2

Orðið á götunni er að breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni nú í september og enn frekari breytinga sé að vænta um áramót. Flókinn ráðherrakapall er nú í undirbúningi, þar sem einkum er þrennt nefnt sem þarf til að kapallinn gangi upp.

1) Innan stjórnarflokkanna er almennt rætt um að tími hinna óflokksbundnu ráðherra sé liðinn. Aldrei hafi staðið til að halda því fyrirkomulagi um aldur og ævi og að nú sé kominn tími til að fara í gamla kerfið með þingmenn í öllum ráðherrastólum. Ekki eru allir sammála þessu, en þó virðist þetta viðhorf njóta vaxandi fylgis.

Fyrir utan þetta almenna sjónarmið hefur legið fyrir í nokkrar vikur að dagar Gylfa Magnússonar í ríkisstjórn eru taldir. Aðeins þurfi að finna finna hentuga tímasetningu þannig að hann geti staðið úr stól sínum með þokkalegri reisn. Gylfa bíður vantraustsumræða á Alþingi í haust, ef hann situr lengur í ríkisstjórn. Ekki er talið að hann myndi lifa slíka umræðu af, auk þess sem vantraustsumræða myndi skaða fleiri innan stjórnarinnar, einkum fjármálaráðherrann.

Brotthvarf Gylfa verður þó pakkað inn í umbúðir almennra breytinga á ríkisstjórn, án þess að felist í því nokkur viðurkenning stjórnvalda á tengingu við erfiðleika ráðherrans í gengislánamálinu. Líklegt er nú talið að Ragna verði einnig beðin að stíga til hliðar, þó að það gæti vissulega beðið eftir skipulagsbreytingum á ráðuneytum um áramót.

2) Lengi hefur verið áhugi á að fá Ögmund Jónasson aftur í ríkisstjórn. Þó hefur andað köldu á milli hans og Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG, undanfarin misseri og hefur Steingrímur sjálfur ekki saknað Ögmundar við ríkisstjórnarborðið. Hann er hinsvegar sagður meðvitaður um að ekki er á þingvetur setjandi án þess að Ögmundur og hans helstu stuðningsmenn séu með. Ella hafi stjórnin einfaldlega ekki þingmeirihluta í erfiðum málum, m.a. erfiðum ríkisfjármálum.

Reyndar hafði einn stjórnarþingmaður á orði í dag að það væri líka erfitt að hafa Ögmund innan stjórnar. Það væri þó eini kosturinn í stöðunni, ætli stjórnin að lifa lengur.

Hjá Samfylkingu er minni spurn eftir því að komast í ráðherrastól, en formaður flokksins er þó sagður spenntur fyrir því að gera breytingar samfara breytingum hjá samstarfsflokknum. Flokkurinn eigi ekki að sitja óbreyttur við stjórnarborðið þegar samstarfsflokkurinn breytir til. Ýmsir hafa talið að Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, sé „næsti maður inn“, en orðið á götunni er að svo sé ekki. Formaður flokksins taki ekki annað í mál en að fá konu næst í ríkisstjórn, enda hafi karlar verið í meirihluta af hálfu flokksins hingað til, þrír á móti tveimur.

Orðið á götunni er að Oddný G. Harðardóttir verði næsti ráðherra Samfylkingarinnar. Þrátt fyrir stutta þingreynslu er hún talin hafa áunnið sér sterka stöðu í þingflokknum.

3) Fyrir utan þessar hrókeringar liggur fyrir frumvarp forsætisráherra um að sameina ráðuneyti og fækka úr 12 niður í 9. Vinstri grænir hafa lengi barist gegn þessari breytingu, einkum þó að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti sameinist iðnaðarráðuneyti í einu atvinnuvegaráðuneyti. Orðið á götunni er að málamiðlunin verði sú að fresta þeirri breytinu um allt að eitt ár, en að aðrar breytingar gangi í gegn um áramót, þ.e. að dómsmála- og samgönguráðuneyti verði að innanríkisráðuneyti og að heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti verði að einu velferðarráðuneyti.

Með þessu yrði ráðuneytum fækkað um áramótin, úr 12 í 10. Sem áður segir er hugsanlegt að Ragna Árnadóttir haldi stöðu sinni sem dómsmálaráðherra fram að þessari sameiningu um áramótin, þó að margt bendi þó til að hún hverfi um leið og Gylfi nú í september. Við þessa breytingu er líka talið víst að Kristján Möller hverfi úr ríkisstjórn.

Staða Ögmundar Jónassonar er talin geta styrkst við þessar breytingar, þar sem hann þyki líklegur kandídat í bæði þessi nýju ráðuneyti; innanríkis- eða velferðarráðuneyti.

Orðið á götunni er að enn sé nokkuð í að ráðherrakapallinn gangi upp og enn geti ýmislegt hleypt þessum áformum úr skorðum. Jafnvel hangi líf ríkisstjórnarinnar í heild sinni stundum á bláþræði.

«
»