eyjan.is

Miðvikudagur 17.03.2010 - 10:57 - Ummæli ()

Dularfullt fyrirtæki

eca program

Margir lukkuriddarar hafa komið til Íslands eftir hrunið. Þeir eiga það allir sameiginlegt að trúa því að hér sé skjóttekin gróða að finna eða aðgang að verðmætum sem ekki fást annars staðar. Landsmenn og stjórnvöld hafa þó reynst misjafnlega ginnkeypt fyrir þessum aðilum og margir snúið aftur tómhentir.

Nú bankar hér dularfullt fyrirtækið, E.C.A. Program, sem samkvæmt Fréttablaðinu í dag er einkarekið hernaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ýmiss konar þjónustu við flugheri víða um lönd. Forstjóri fyrirtækisins, Melville ten Cate, neitar að skýra frá því hverjir eru eigendur, en segir að Íslendingar séu ekki í þeim hópi. Hann lofar 200 milljarða fjárfestingu hér fái hann aðstöðu á Keflavíkurflugvelli.

Á vefsíðu fyrirtækisins kemur fram að það var stofnað árið 2007 en hafi byrjað starfsemi á þessu ári. Fullyrt er að félagið hafi aðgang að tveimur flugvöllum í Evrópu fyrir starfsemina. Ekki kemur fram hvaða flugvellir það eru. Athygli vekur að myndir frá Keflavíkurflugvelli prýða forsíðuna á vefnum. Með þessu er gefið í skyn að fyrirtækið hafi nú þegar fengið aðstöðu á vellinum.

Orðið á götunni er að full ástæða sé til að flýta sér hægt í þessu máli þótt miklum peningum sé lofað. Oft eru fyrirtæki af þessu tagi tengd leyniþjónustustarfsemi og öðru sem ekki þolir dagsbirtu. Ekki nægir að forstjórinn segi að starfsmennirnir beri ekki byssur og líki þeim við pizzusendla.

«
»