Nöfn tólfmenninganna

Tólf menn hafa fengið bréf með andmælarétti frá rannsóknarnefnd Alþingis um bankahrunið. Samkvæmt fréttatilkynningu frá nefndinni eru bréfin send vegna ákvæða í 13. grein laga um rannsóknarnefndina, en þar segir að hún skuli gera þeim, sem ætla má að orðið hafi á mistök eða orðið hafi uppvísir að vanrækslu í starfi, skriflega grein fyrir afstöðu sinni til atriða sem varða þátt þeirra í málinu og nefndin íhugar að fjalla um í skýrslu sinni til Alþingis.
En hverjir eru þessir tólf? Nefndin vill ekki upplýsa það fyrr en skýrslan verður birt um næstu mánaðamót.
Orðið á götunni er að næsta öruggt sé að meðal þeirra sem fengið hafa slík bréf séu eftirtaldir:
Geir H. Haarde fyrrv. forsætisráðherra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrv. utanríkisráðherra
Árni M. Mathiessen fyrrv. fjármálaráðherra
Björgvin G. Sigurðsson fyrrv. viðskiptaráðherra
Ekki er öruggt að fleiri fyrrverandi ráðherrar hafi fengið bréf né nokkur núverandi ráðherra.
Æðstu embættismenn íslenska ríkisins að ráðherrum frátöldum eru ráðuneytisstjórar. Orðið á götunni er að þrír þeirra hljóti að hafa fengið bréf frá rannsóknarnefndinni:
Bolli Þór Bollason fyrrv. ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu
Baldur Guðlaugsson fyrrv. ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu
Jónína S. Lárusdóttir ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu
Þegar Björgvin G. Sigurðsson skipaði Jónínu ráðuneytisstjóra sumarið 2007 lá fyrir að eiginmaður hennar væri viðskiptastjóri Landsbankans í London.
Síðan eru það æðstu menn eftirlitsstofnananna, Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Orðið á götunni eru að eftirtaldir hafi fengið bréf:
Davíð Oddsson fyrrv. seðlabankastjóri
Ingimundur H. Friðriksson fyrrv. seðlabankastjóri
Eiríkur Guðnason fyrrv. seðlabankastjóri
Jónas Fr. Jónsson fyrrv. forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins
Þetta eru ellefu menn. Nú er bara að giska á hver tólfti maðurinn gæti verið.