Sendu Orðinu póst
ordid@eyjan.is
08.02 2010 - 17 ummæli »

Stefna Björgólfi en hampa Jóni Ásgeiri

arionbanki2

Á sama tíma og Arion banki sýnir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Jóhannesi í Bónus og Ólafi Ólafssyni í Samskipum, einstakan rausnarskap; færir þeim stórfyrirtæki á silfurfati og neitar að útiloka milljarða afskriftir á lánum vegna verslunarkeðjunnar Haga, kynnir bankinn að farið verði í hart vegna 6 milljarða skuldar Björgólfsfeðga.

Orðið á götunni er að þetta sé einkennilegt.

Ekki er um það deilt að eðlilegt að sé Arion banki beiti öllum tiltækum ráðum til að innheimta skuld Björgólfsfeðga.

En Orðið á götunni er að jafnræði og gagnsæi þurfi að ríkja þegar útrásarvíkingarnir eiga í hlut ekkert síður en allir aðrir. Það getur ekki talist boðlegt að hampa sumum skuldakóngum en stefna öðrum.

17 ummæli

Rita ummæli

Jóhann
08.02 2010 kl.19:24

Samfylkingin sér um sína
munið að kjósa okkur aftur í næstu kosningum

Karl
08.02 2010 kl.19:33

Þetta staðfestir að hér er eitthvað verulega undarlegt á ferðinni.

Sennilega tretsir Samfylkingin sér ekki til að halda áfram án stuðnings Baugsveldisins, sérstaklega fjölmiðlahlutans.

:Þess vegna gengur flokkurinn erinda þeirra sem keyptu hann forðum.

TómasHa
08.02 2010 kl.19:36

Ferlið hvernig menn fá að afskrifa sínar skuldir er mjög ógagnsætt og eiginlega ótrúlegt hvernig þessi vinnubrögð eru hjá bankanum. Ótrúlegt að menn skuli ekki ganga jafn hart fram gegn öllum.

Baldur
08.02 2010 kl.19:39

Er Orðið að vorkenna Björgólfi? Þarf að taka eitthvert sérstakt tillit til hans? Er ekki Arion einkabanki sem metur sjálfur hvernig hann tekur á málum? Kunna ekki að vera þarna eðlilegar ástæður sem Orðið þekkir ekki?

Andrés Ingi
08.02 2010 kl.20:07

Baldur áttu annan?

Siggi T.
08.02 2010 kl.21:11

Arion banki hefur lýst því yfir að Jón Ásgeir sé í persónulegum ábyrgðum fyrir hluta skulda Haga þannig að það er verið að mismuna mönnum. Og er nú málið að verða torskilið fyrir allan almenning, og verður nú skuldabréfa kóngurinn uppá 200 miljarða sem hann plataði Seðlabankann í að kaupa af
Icebank og lendir nú á skattgriðendum að borg, að skýra afstöðu bankans hið allra fyrsta.

Guðbjörg
08.02 2010 kl.22:09

Björgólfur skuldar BARA 6 miljarða en Jón skuldar Arion um 50 miljarða svo Bjöggi skuldar ekki nógu mikið til að fá ásjónu hjá bankastjóranum,, svona svipað og við hin sem skuldum einhverjar krónur og kannski millu.

Ótrúlegt rugl þarna í gangi, hélt að Björgólfur gamli hefði farið í gjaldþrot út af þessum 6 miljörðum,, en ég hef hvergi séð að Jóhannes eða Jón Ásgeir þurfi að fara í þrot yfir einu eða neinu heldur þvert á móti, þá vilja menn að þeir skuldakóngar íslands og hrunameistarar fái allt sitt til baka. Oj bara.

Ólafur
08.02 2010 kl.22:53

SAMSPILLINGIN SÉR UM SÍNA,
MEGI ÞESSI BANKI BRENNA TIL GRUNNA.

Sóða-Gandur
08.02 2010 kl.23:04

Gæti verið að Já og CO séu þessir kröfuhafar sem vildu ekki gefa sigg uppi?

Ásgeir Gunnasson
09.02 2010 kl.00:20

ja og kanski TotÓli eigandi og eða ráðandi afl í Arion braskinu trúlega ? er Tórtóli líklegur heimsmeitari ?

Tása
09.02 2010 kl.00:50

ksnnski eru JÁJ og Finnur leynilegir elskhugar.

Kakkalakki
09.02 2010 kl.01:17

„Ég á allt. Ég má allt.“ Syngur Jón Ásgeir Jóhannesson með Bjartmari
næst þegar hann á afmæli. Hann á Arionbanka ásamt Ólafi Ólafssyni.
Það voru þeir sem keyptu skuldir sínar á slikk og þar með bankann. Þess
vegna mega þeir fella þær niður. Bjögólfur fær ekki niðurfellingu vegna þess
að hann á ekkert í Arionbanka. Hann verður þess vegna að fara til Ásmundar
í Landsbankanum og fá þessa sex milljarða lánaða þar. Seinna mun hann
ef allt gengur að óskum kaupa Landsbankann og fella skuldina niður.

guðni h.
09.02 2010 kl.03:35

Þessi ákvörðun gengur svo bersýnilega á skjön við heilbrigða skynsemi, að það er sjálfsagt að velta fyrir sér hvaða sjónarmið liggja að baki ákvörðunar Finns Sveinbjörnssonar.

Undanfarnar vikur hefur hann alltaf falið sig á bakvið ,,verklagsreglur bankans“ og réttlætt allt í skjóli þeirra. Þetta er sami leikur og bankastjórarnir léku misserin fyrir hrun, þegar ryki var slegið í augu almennings með alls kyns kúnstum.

Þetta verður líklega síðasta mál Finns áður en hann hættir. Finnst engum það skjóta skökku við að hann eyði síðustu dögunum í að verja hagsmuni Jóns Ásgeirs innan Arion banka? Nú ætla ég ekki að væna einn eða neinn um mútuþægni, en í augum þess sem ekki er vel að sér í verklagsreglum Arions gæti atburðarrásin svo sannarlega litið þannig út.

Til að taka af allan vafa, þurfa Finnur og félagar að auka gangsæið. Þeir þurfa að svara spurningum eins og: Hvers vegna er ekki gengið beint að eigum Jóns Ásgeirs? Hann setti Haga í þrot, hvers vegna er honum gefin grið? Væri ekki réttar að taka þann pening sem hann á núna upp í skuldina, án þess að hann fái neitt í staðinn? Þessu síðastnefnda þarf Finnur að svara, þannig að það hljómi sannfærandi. Þetta atriði gerir málið tortryggilegt.

Og hvar er Samfylkingin? Hvers vegna þegir hún? Hvar er Össur? Hvar er Jóhanna? Hvers vegna þegja þau um þetta tiltekna mál? Finnst þeim þetta í lagi? Ef Sjálfstæðisflokkur bar ábyrgð á bruðlinu fyrir hrun, ber Samfylkingin svo sannarlega ábyrgð á því sem kemur í kjölfar þess. Ég kaus Samfylkinguna í fyrsta skiptið nú í kosningunum. Hún lofaði lofa bót og betrun. Hvað segir hún við þessu? Ég verð að fá einhver svör!

Baldur
09.02 2010 kl.10:01

Ég minni á að lánabók Landsbankans hefur ekki verið opnuð. Hvað skulda Björgólfarnir Landsbankanum? Ætli það teljist ekki í milljörðum?

GG
09.02 2010 kl.10:12

Verður ekki hér að gera greina á persónulegum skuldum eða skuldum sem persónur eru í ábyrgð fyrir og síðan skuldum þar sem persónulegar ábyrgðir liggja ekki að baki.
Björgólfur er persónulega í ábyrgð fyrir þessum 6 milljörðum og því sjálfsagt að sækja það beint á hann eins og lög gera ráð fyrir og gert er við aðra einstaklinga í sömu stöðu.

Ábyrgðir á 50 milljarða skuld við Arion tengdum Högum er ekki nema að litlum hluta með persónulegar ábyrgðir að baki. Ég er nokkuð viss um að ef að afskriftum kemur á einhverju af þessari skul (sem mun án efa koma til) þá er ég líka nokkuð viss um að Jón Ásgeir mun ekki sleppa undan persónulegum ábyrgðum á þeim hluta. Hann mun verða sóttur á sama hátt og Björgólfur núna, sá tími er bara ekki kominn (en mikið verður gaman þegar að því kemur…)

Að lokum vil ég segja að það er með ólíkindum hvernig fréttir eru sagðar á klakanum okkar í dag, þessi mál er öll jafn ólík eins og þau eru mörg, en samt tekst bæði fréttamönnum og vefmiðlum einhvernvegin að hræra þessu saman í stóran kokteil og því miður tekur lýðurinn undir (eins og sjá má í kommentum á eyjan.is). Það eina sem ég vill sjá er að réttlætinu verði fullnægt og að saksóknari klúðri ekki málum eins stórkostlega og gerðist í því fræga Baugsmáli !!! Ég á enn eftir að skilja hvernig menn komust að þeirri niðurstöðu að Jón Ásgeir væri saklaus í snúningnum með 10-11 búðirnar!

HHS
10.02 2010 kl.11:06

„Now, this breaks my heart !“

JULI
16.02 2010 kl.10:43

Spillingarflokkurinn sér um sína. Hendum þessu liði út.

Lokað er fyrir ummæli


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar