Sendu Orðinu póst
ordid@eyjan.is
07.02 2010 - 11 ummæli »

Hver er forsætisráðherra?

rikisstjorn_8mai09

Engin tilkynning hefur verið gefin út um það hver gegnir embætti forsætisráðherra í fjarveru Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún fór úr landi í gær og er ekki væntanleg fyrr en í lok komandi viku. Oft hefur gefin út tilkynning um það hver gegni embættinu þegar forsætisráðherra er fjarverandi. Þannig var það til dæmis þegar Geir H. Haarde fór í tíu daga frí sumarið 2008. Þá var formlega tilkynnt á vef Stjórnarráðsins að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir gegndi embættinu í fjarveru Geirs.

Þegar Jóhanna var á Norðurlandaráðsþingi í Stokkhólmi í október í fyrra var Kristján L. Möller forsætisráðherra í nokkra daga en síðan Steingrímur J. Sigfússon. Engin formleg tilkynning var þá gefin út en skýrt frá málinu í frétt í Morgunblaðinu.

Á þriðjudaginn fer fram útför Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, á vegum ríkisstjórnarinnar. Jóhanna Sigurðardóttir verður ekki viðstödd. Það þykir benda til þess að brýn ástæða hafi verið fyrir því að hún tók sér nokkurra daga leyfi eftir mikla vinnu og mikið álag undanfarinna daga.

11 ummæli

Rita ummæli

Sigurður #1
07.02 2010 kl.17:44

Jóhanna Sigurðardóttir er ekki hinn raunverulegi Forsætisráðherra landsins, hann er enn í Utanríkisráðuneytinu, og hækjan í Fjármálaráðuneytinu svo það er ekkert tilefni til að senda út einhverja sérstaka tilkynningu þar um.

Jóhanna er leppur, og skiptir engu máli hvar í veröldinni hún er stödd.

Ari
07.02 2010 kl.19:42

ég mæli með Hemma gunn, hann myndi hressa landann við.

H.G
07.02 2010 kl.19:44

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stjórnar Íslandi, hvað er þetta???

Steingrímur sópar gólfin á meðan Jóhanna fer í fríið, hahahhaa!

Bubbi
07.02 2010 kl.19:49

Lalli Jons ætti að fá tækifæri eins og Hrannar B ekki gæti þetta versnað
en um þessa sem koma til greina gegna embætti forsætisráðherra
allir vanhæfir

Guðmundur
07.02 2010 kl.19:53

Hverjum er ekki sama hvort Jóhanna er í útlöndum eða ekki?

Hún gerir hvort sem er ekki neitt.

Virðingarleysið sem hún sýnir þjóðinni með aðgerðaleysi sínu er algjört og nú bætist við virðingarleysi í garð látins fyrrverandi forsætisráðherra sem Jóhanna ætlar ekki að fylgja til grafar. Ætli hún láti ekki Hrannar skrifa minningargrein í sínu nafni.

Magga maur
07.02 2010 kl.20:02

Kemur alltaf betur í ljós sú fyrirlitning sem ráðleysingjar sýna sinni þjóð.
Fyrirlitningin er nú að ná nýjum hæðum. Þjóðinni kemur ekki við hver er að vinna og hver er í fríi. Hver fer á leynifund, hvers vegna og fyrir hvern.
Þessir 63 eru eitthvað að misskilja…… eða eru það við hin sem erum að misskilja…..þessa 63?
Þennan misskilning þarf augljóstlega að laga. Ekki seinna en í næstu viku.
Hvað halda þessir 63 ráðleysingjar að þeir séu eiginlega?
Ósnertanlegir, heilagir eða hafnir yfir alla gagnrýni.
Nei. Þannig á það ekki að vera. Það er rangt!
Hér á að ríkja jafnræði en ekki flokksræði eða jafnvel einræði.
Hvers vegna leyfum við þessum 63 þingmönnum að hafa á okkur þetta hálstak sem þeir hafa?
Flestir foreldrar kenna börnum sínum mun á réttu og röngu, það er komin tími til að kenna þessum 63 það sama.

Des
07.02 2010 kl.20:33

Að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ætli sér ekki að vera viðstödd útför Steingríms Hermannssonar, myndi vægast sagt teljast að kunna sig ekki, í mínum bókum.

Ægir
07.02 2010 kl.22:40

Mæli með Eiríki Stefánssyni..kvótaandstæðing með meiru.

Haukur Kristinsson
07.02 2010 kl.22:42

Af hverju skyldi Jóhanna vera viðstödd útför Steingríms?

Ekki verður Steingrímur viðstaddur útför hennar.

Aron
08.02 2010 kl.00:07

Fynnst það algjör dónaskapur og virðingarleysi að Forsætisráðherra sem reyndar gengur undir nafninu M&M(mállaus mannafæla) skuli ekki sýna Steingrími þá virðingu að vera viðstödd útför hans!!! Hallærið á sér engin takmörk!!!!!!!!!!!!

Soffía Sigurðardóttir
08.02 2010 kl.00:09

Strax þegar minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna var mynduð í febrúar 2009, var ákveðið að Steingrímur J. Sigfússon væri staðgengill Jóhönnu Sigurðardóttur í embætti forsætisráðherra.
Um þetta má m.a. lesa hér: http://www.visir.is/article/20090201/FRETTIR01/166378451

Þessi ákvörðun var endurnýjuð við myndun núverandi ríkisstjórnar, þótt ég hafi ekki í fljótu bragði fundið tilvísun í það á netinu.

Það er sumsé bundið í samstarfssamningi stjórnarflokkanna að Steingrímur J. Sigfússon er forsætisráðherra núna þegar Jóhanna Sigurðardóttir er fjarverandi.

Lokað er fyrir ummæli


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar