Sendu Orðinu póst
ordid@eyjan.is
06.02 2010 - 22 ummæli »

Hvernig dettur henni þetta í hug?

Johanna09

Orðið á götunni er að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra reyni nú mjög á þolinmæði þjóðarinnar gagnvart leiðtoga sínum. Ýmsum þótti það jaðra við hneyksli að hún skyldi ekki vilja hitta fulltrúa heimspressunnar eftir fund með Barosso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel fyrr í vikunni. Þar hefði gefist einstakt tækifæri til að útskýra málstað Íslands fyrir stærstu fjölmiðlum heimsins.

Mörgum mun vafalaust þykja að forsætisráðherra bíti höfuðið af skömminni með því að rjúka úr landi í dag í frí með sambýliskonu sinni og afboða ríkisstjórnarfund eftir helgina. Icesave-deilan er á mjög viðkvæmu stigi nú um helgina og aldrei hefur jafn mikið verið í húfi fyrir Ísland fjárhagslega. Margir spyrja að vonum hvernig í ósköpunum standi á því að forsætisráðherra láti sér detta í hug að hverfa af vettvangi á þeim tímapunkti.

Orðið á götunni er að það hljóti að fari að hitna undir stóli forsætisráðherra Íslands.

22 ummæli

Rita ummæli

Einar
06.02 2010 kl.13:45

Mér þykir Götuorðið heldur þröngsýnt núna.

Er ekki bara sterkur leikur að hverfa um tíma. Eru ekki meiri líkur á að Jóhanna komi þá tilbaka fílefld og verði kannski eilítið meira örugg með sig og skíni aðeins meira í þessu hlutverki sem hún er í.

Er það ekki það sem Götuorðið og við flest viljum?

Eða vill Götuorðið taka að sér starf Jóhönnu og standa í þessari geðveikis neikvæðu orrahríð endalaust án þess að pústa inn á milli?

Margrét
06.02 2010 kl.13:58

Má forsætisráðherra ekki taka sér örfáa daga frí??- hvers lags er þetta. Það er ekki þing í næstu viku og símar virka ágætlega milli landa ef e-ð kemur upp. Þessa dagana virðist svo sem Jóhönnu Sigurðardóttur sé ómögulegt að gera bloggurum þessa lands til geðs. Ég spyr ykkur- getið þið ekki verið aðeins róleg gagnvart henni. Hún hefur til þessa ekki klikkað þegar á þarfað halda.

Haraldur
06.02 2010 kl.14:10

Þetta er stórkostlegt grín. Jóhanna á að sjá sóma sinn í að biðjast lausnar því að hún ræður engan veginn við þetta embætti.

Allt tal um skjaldborg heimilanna og aukið gangsæi í hinu nýja Íslandi er ótrúlegt innihaldslaust blaður. Það sjá það allir sem vilja sjá að hún er vonlaus leiðtogi. Tími hennar er fyrir löngu liðinn.

Villi
06.02 2010 kl.14:13

Hver skrifar „Orðið“? Hver er málstaður Íslands? Er Sigmundur tekinn við Eyjunni? Finnst Eyjunni ekki að Jóhanna eigi að fá sér annan jakka?
Er Guðmundur kominn heim? Búinn að leika heiðarlegan alvöru skríbent og sannleiksleitandi ritstjóra í nokkur ár en nú er það payback, vinurinn?

árni
06.02 2010 kl.14:15

Má konan ekki taka sér frí í nokkra daga. Efast um að hún verði lengur en viku í burtu.

Þó hún sé ekki að auglýsa það mikið og belgja sig út í fjölmiðlum er staðreynd að Jóhanna Sigurðardóttir vinnur lengri vinnudag en flest ykkar sem skrifa hér.

Haki
06.02 2010 kl.14:17

Það er eitt orð yfr þetta: Dómgreindarleysi!!!

Hannes Hrun
06.02 2010 kl.14:22

Aðal atriðið er að auðmenn fá að fara í frí, sem oftast.

Ekki ráðherrar.

Ég elska auðmenn.
Bæjó, H.

Þóra Bergný
06.02 2010 kl.14:43

Gerum þær kröfur til Samfylkingarinnar að sú stóra hreyfing standi sig en í guðsbænum gefum Jóhönnu smá breik eða ætlum við að ganga að öllum okkar leiðtogum dauðum í skilningsleysi og heimtufrekju. Viku frí er öllum hollt. Hún þarf að anda og vera manneskja eins og við öll og kemur betur í stakk búin til starfa að loknu fríi. megi hún vel njóta.

Pétur 2
06.02 2010 kl.15:12

Fréttamennskan hér á eyjunni hefur náð nýjum lægðum, lágkúra út í gegn. Smjörklípuárásir á forsætisráðherra halda áfram. Ef að einhver annar hefði verið við völd og tekið sér nokkurra daga frí þá hefði verið minnst orði á það.
Geir H. haarde byrjaði alla daga í ræktinni, af hverju böggaði enginn hann út af því? Eyða einum og hálfum tíma í rætkinni á dag og á þeim tíma VAR RÓM AÐ BRENNA. Þetta er helv… kjaftæði og rugl.
Orðið á götunni er að mönnum finnst eyjan.is vera farin að ganga fullhart erinda fyrrverandi valdablokka landsins.

ala
06.02 2010 kl.15:42

Skiftir engu máli hvar hún er ,ræður ekki við starf forsætisráðherra

Jón
06.02 2010 kl.16:00

Þetta er afar ómerkilegur fréttaflutningur – þurfum ekki á meiri vitleysu að halda, nóg að stjórnarandstaðan sé heilaskert og hundómerkileg – þetta er greinilega smitandi.

Jens Jensson
06.02 2010 kl.16:52

Ef Icsave deilan er á viðkvæmu stigi núna, er þetta sterkasti leikur Forsætisráðherra. Fara, slappa af, og láta hlutina jafana sig.
Koma svo heim og innsigla niðurstöðuna.

Anna
06.02 2010 kl.16:53

Þetta er fávitalegur fréttaflutningur, vægast sagt og Orðinu ekki til sóma. Því miður er þessi dálkur, sem áður flutti oft skemmtileg „skúbb“ úr þjóðfélaginu, aðallega orðinn pólitískur skítadreifari.

Alveg er mér sama hvort að forsætisráðherra talar við „heimspressuna“ í Brussel eða ekki. Detttur ykkur í Orðinu á götunni ekkert í hug að hún hafi kannski verið að tala máli Íslands við ESB og að málin séu á það viðkvæmu stigi að það henti ekki að blaðra um þau við fjölmiðla akkúrat núna?

Nei, þið eruð á svo lágu plani að það er varla svaravert. Að þið getið ekki unnt konunni að fara í frí í örfáa daga eftir gríðarlega erfiða og samfleytta vinnutörn mánuðum saman sýnir ekkert annað en heimsku eða pólitískt hatur, nema hvort tveggja sé.

ASE
06.02 2010 kl.17:09

Gleður mig að flestir gera athugasemdir við svona málflutning, ekki Eyjunni til sóma. Eyjan er aðeins farin að minna á mbl.is á köflum, og það er því miður ekki hrós!

Sérhver
06.02 2010 kl.17:52

Þessi dálkur ætti frekar að heita „Tuðið í jötunni“.

Auðvitað er alveg sjálfsagt að Jóhanna fari í frí. Það segir Steingrímur, http://visir.is/article/20100206/FRETTIR01/314381807, og Egill Helgason bendir réttilega á að stjórnmálamenn þurfi frí, http://silfuregils.eyjan.is/2010/02/06/stjornmalamenn-thurfa-fri/.

Maður gæti haldið að leigupenni frá AMX héldi uppi tuðinu í jötunni.

Simmi
06.02 2010 kl.17:55

Ég held held að ORÐIÐ Á GÖTUNI ætti að taka sér frí , það er farið að hitna undir stólnum.

jb
06.02 2010 kl.20:54

Einar
06.02 2010 kl.13:45
Ég vissi ekki að kellingin væri að fara í Extreme Makeover , það er eina leiðin til að hún verði örugg með sig og skíni. Þar fyrir utan þá tók hún þetta verkefni að sér og er ekki að valda því.
Þóra Bergný
06.02 2010 kl.14:43
Ég vil miklu frekar ganga af svokölluðum leiðtogum okkar dauðum áður en þeir ganga að okkur dauðum „almúganum“, þar fyrir utan þá virðist vera sama rassgatið undir þessum svokölluðu velferðarflokkum, vinstri grænum og samfylkingu og sjálfstæðisfl og framsókn , og ekki má gleymast hverjir voru í stjórn síðust 18 mánuði fyrir hrun með sjöllum , mig minnir að Jóhanna hafi verið þar , skrítið.

Pétur Örn Björnsson
06.02 2010 kl.22:22

Hvað hefur Jóhanna annars verið að gera annað, en að svara spurningum Olla Rehn, áður en hún hitti Barroso og svo í kjölfarið í frí?

Hvar er þessi margfræga skjaldborg hennar. Kaupir hún kannski regnhlíf í fríinu og býður okkur skjól undir henni?

Spyr sá sem enga sér enn skjaldborgina. Hefur einhver séð hana?

Sigurður Viktor Úlfarsson
07.02 2010 kl.00:18

Að sjálfsögðu er fullkomlega eðlilegt að konan taki sér nokkurra daga frí. Henni veitir ekki af í þessu brjálaða starfi. Það hefur alltaf verið krefjandi að vera forsætisráðherra en aldrei eins og nú. Eiginlega ætti að skylda hana í frí með reglulegu millibili til að forðast burn-out.

Svanur
07.02 2010 kl.00:30

Gott að Jóhanna tekur sér frí þegar loksins á að klára Icesave. Dómgreindarleysið er algert. Hún hefur ekkert gert af gagni í því erfiða máli og varla hefur heyrst í henni. Hvenær talaði Jóhanna síðast um Icesave á þinginu? Jóhanna þarf að fara í frí frá Icesave og frá þjóðinni.

langbestur
07.02 2010 kl.12:27

Er blogglúðrasveit Samfylkingarinnar að fara á taugum yfir því að Jóhanna sé versti og óhæfasti Forsætisráðherra sögunnar?

Jóhanna segðu af þér og það strax getur skelt þér á enskunámskeið í Bretlandi.

Bjarni
08.02 2010 kl.04:28

Jóhanna sýndi hversu óhemju getulaus þessi ríkisstjórn er þegar hún sagði í Kastljós viðtali um daginn að hún væri „agndofa“ yfir að ÓlaTortóla hefði verið fengið skuldlaust Samskip á silfurfati.

Í þessari setningu kristallast getuleysi þessara ríkisstjórnar. Ríkisstjórnar sem við höfum beðið í 18 ár eftir.

því má svo bæta við að Jóhanna og sambýliskona hennar eiga í persónulegri „krísu“ og því var þetta frí talið nauðsynlegt sem það og efalaust er.

Lokað er fyrir ummæli


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar