
Þegar Róbert Wessman tilkynnti haustið 2007 að hann hefði gefið Háskólanum í Reykjavík þúsund milljónir króna urðu margir að vonum til að lofa framtakið. Heill leiðari í Morgunblaðinu var helgaður þessum örláta athafnamanni. Og blaðamaður á Fréttablaðinu krýndi hann góðjöfur í ritstjórnardálkinum Frá degi til dags á leiðarasíðu Fréttablaðsins. Er þetta í fyrsta og eina sinn sem orðið hefur verið notað:
Orðrétt segir í Fréttablaðinu 19. september 2007:
Róbert Wessman, forstjóri Actavis, skráði sig í metabækurnar þegar hann lagði til einn milljarð króna sem hlutafé í nýstofnaðan þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík. Haft er fyrir satt að þetta sé stærsti styrkur sem einstaklingur hefur varið í eitt verkefni. Auðjöfrarnir íslensku hafa hver á fætur öðrum stimplað sig inn sem velgjörðarmenn lista- og fræðastarfs. Orðið velgjörðarmaður þykir hins vegar ekki fanga viðurgjörning af þessari stærðargráðu og því hefur hugtakið „góðjöfur“ verið slegið fyrir Róbert Wessman.
Nú er komið í ljós að milljarðurinn skilaði sér ekki nema að hluta. En fimm hundruð milljónir, sem sagt er að skólinn hafi fengið, hljóta þó að teljast dálaglegur skildingur og rausnarlegt framlag.
Lokað er fyrir ummæli
6 ummæli
Rita ummæli06.02 2010 kl.18:13
Slóð
Athyglisverður munur á ‘tóninum’ í þessari grein annars vegar og ‘fréttinni’ sem er hér á Eyjunni hins vegar. Er þetta ekki sami fjölmiðillinn eða er ritstjórinn farinn í frí?
06.02 2010 kl.20:11
Slóð
Nema hvað að samkvæmt íslenskum skattalögum gat Róbert (þar sem um styrki til menntamála var að ræða) dregið 80 % fjárhæðarinnar frá skatti!!!! Þannig að ef hann hefur nýtt sér þau ákvæði þá var það íslenska ríkið sem gaf HR 500 milj. en ekki Róbert.
06.02 2010 kl.20:14
Slóð
Nema hvað að samkvæmt íslenskum skattalögum er hægt að draga 80% þeirrar upphæðar sem gefin er til menntamála frá skatti. Ef Róbert nýtti sér þessi ákvæði þá var það íslenska ríkið sem gaf HR hundruðir miljóna. en ekki Róbert.
06.02 2010 kl.22:09
Slóð
Var þetta gjöf? Fréttir síðan hafa alltaf sagt þetta vera hlutafé.
http://eyjan.is/blog/2010/02/05/robert-wessmann-adeins-greitt-helming-thess-fjar-sem-hann-lofadi-haskolanum-i-reykjavik/
Ef svo þá mjög áhugavert að vita af hverju var kynnt sem gjöf á sínum tíma?
07.02 2010 kl.17:57
Slóð
Hvar skyldi hann hafa tekið lán fyrir þessu, og hver afskrifar svo lánið, og hver borgar svo lánið?
Ekki ætla ég að láta mér detta það i hug eitt augnablik að þessi aur hafi komið úr hans eigin vasa.
07.02 2010 kl.19:50
Slóð
Er það satt að „góðjöfurinn“ hafi gefið 1000 milljónir sem skruppu saman í 500 milljónir og þar af hafi ríkið borgað 400 milljónir? Getur einhver komist að hinu rétta?
Það er nú ekki beint í anda Róberts Wessmanns að gefa peninga. Var það ekki hann sem reyndi að smygla demantshringnum um árið? Hann fékk virðisaukaskattinn endurgreiddan í Danmörku en lét svo engan vita þegar komið var til Keflavíkur…