
Deilt hefur verið á ráðgjafa og samstarfsmenn Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fyrir þá ákvörðun að efna ekki til blaðamannafundar að loknum fundi hennar með José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Brussel í gær.
Þar hefði skapast einstakt tækifæri til að tali máli Íslands frammi fyrir heimspressunni.
Orðið á götunni er að ekki sé við neinn að sakast í þessu efni nema Jóhönnu sjálfa. Hún hafi þvertekið fyrir að hitta blaðamenn þrátt fyrir að í ráðuneytinu hafi henni eindregið verið ráðlagt að gera það. Eina skýringin á þessu háttalagi forsætisráðherra er að henni þykir ekki þægilegt að sitja fyrir svörum erlendra blaðamanna á fundi. En er þetta viðunandi afstaða fyrir forsætisráðherra Íslands og leiðtoga þjóðarinnar?
Lokað er fyrir ummæli
26 ummæli
Rita ummæli05.02 2010 kl.15:11
Slóð
Á þessum tímum er alveg gífurlega mikilvægt að leiðtogar Íslands geti hitt blaðamenn.
En það má gleðjast yfir stormandi lukku Ólafs og eiginlega ætti bara að virkja hann betur úr því Jóhanna kann ekki „erlensku“.
05.02 2010 kl.15:14
Slóð
Svarið er:
Nei. Þetta er ekki viðunandi afstaða.
Um það þarf ekki að deila.
05.02 2010 kl.15:18
Slóð
http://www.youtube.com/watch?v=SvHqUnRzh0s&feature=related
05.02 2010 kl.15:30
Slóð
Algjörlega galið.
EF rétt er.
05.02 2010 kl.15:34
Slóð
Þetta finnst vinstrimönnum alveg sjálfsagt – að hafa forsætisráðherra sem þjáist af óstjórnlegri félagsfælni.
Jóhanna er þjóðinni til skammar.
05.02 2010 kl.15:45
Slóð
Afhverju að uppljóstra um hina gapandi vankunnáttu?
Það er betra fyrir Ísland að erlendir fjölmiðlar, stjórnmálamenn og lánastofnanir/matsfyrirtæki haldi að hún viti og kunni eitthvað.
05.02 2010 kl.16:04
Slóð
Það var gaman að sjá í fréttunum í gær Jóhönnu og Barroso ganga saman í hrókasamræðum. Líklega talar hann íslensku.
05.02 2010 kl.16:22
Slóð
Jóhanna er hornamaður, hefur hvorki þor né getu til að fara í hringinn !!
05.02 2010 kl.16:25
Slóð
Ég las frétt með látum einhversstaðar í gær, þar sem sagt var frá því með stolti að ráðherra hafi „hitt“ erlenda fréttamenn.
Ólafur Ragnar hefur vinninginn, er mörgum skrefum á undan.
Þetta verður allt gott og blessað, og sjálfsagt gaman að kenna sögu í framtíðinni, þegar afkomendur okkar lesa sér til um Íslandssögu í skólanum. Og horfa fram til þess að borga skuldaklafann sem við bjuggum til.
05.02 2010 kl.16:26
Slóð
Jóhanna ætti að fá Ólaf Ragnar til að tala máli þjóðarinnar fyrir sig og stíga til hliðar sjálf.
05.02 2010 kl.16:30
Slóð
Bjarni……..stormandi lukku Ólafs. Væri þér þakklátur fyrir upplýsingar um þessa lukku erlendis. Ég fylgdist með lukku hjá InDefence hópnum og jafnvel Íhaldsmönnum, en til þess var ekki leikurinn gerður. Sem sagt, það væri gaman að fá Infos eða slóð á þær.
05.02 2010 kl.16:46
Slóð
Hvað yrði sagt ef Obama væri með fjölmiðlafælni ?
Hún á bara að hafa með sér túlk, sé það hluti af vanda hennar.
Forstæsráðherra þarf að geta talað við fjölmiðla, það er hluti af starfinu.
05.02 2010 kl.18:12
Slóð
Ef Jóhanna væri karl þá væri hún ekki gagnrýnd svona. Mér finnst frábært að hún heldur sínu striki og ég treysti henni til að vinna vel að málum Íslands þó hún hafi ekki talað við fréttamenn þarna.
Hættið svo að bera hana saman við þá karla sem hafa gengt þessu starfi áður.
05.02 2010 kl.18:53
Slóð
Orðið á götunni segir að ef Jóhanna væri á útopnu í útlöndum alla daga, þá væri allt vitlaust yfir kostnaðinum og því að hún væri ekkert að hugsa um ástandið hér heima. Þá væri hún athyglissjúk eins og forsetinn.
05.02 2010 kl.19:57
Slóð
Það er eiginlega ekkert hægt annað en að vorkenna Jóhönnu. Hún var neydd til þess að vera forsætisráðherra en ræður ekkert við embættið og hefur sjálfsagt aldrei vilja það. Það sést svo greinilega. Mikið óskaplega er Samfylkingin lélegt stjórnmálaafl.
05.02 2010 kl.20:32
Slóð
Vandinn felst ekki í þekkingarleysi hennar á tungumálum, heldur hagmálum. Það er það sem hún myndi opinbera ef hún væri einhverntíma til viðtals.
06.02 2010 kl.00:13
Slóð
Jóhanna stendur sig vel. Síðasti foringi okkar var duglegur í gapinu hvort sem hann var að mæra og lofsyngja bankana okkar eða eftir hrun að gera okkur að fíflum í beinni útsendingu um alla heimsbyggðina; Maybe I should have? Er fólk búið að gleyma þessu?
Sættir og samningar nást ekki á torgum úti.. eða í beinni. Allur þessi spuni nú með Eyjuna í broddi fylkingar gengur út á það eitt að reyna að klekkja á Jóhönnu og brjóta til að þeir Gög og Gokke stjórnarandstöðunnar komist að kjötkötlunum og pappírstæturunum og geti hreinsað skít feðra sinna og frænda og helst endurreist þá.
06.02 2010 kl.00:24
Slóð
Villi, geturðu bent á fimm atriði þar sem Jóhanna stendur sig vel? Þrjú? Eitt???
06.02 2010 kl.01:03
Slóð
Þekking á hagmálum?? Guy. Geir var með þekkingu á hagmálum?
Þekking eða menntun hverskonar er lítils virði ef maðurinn er ekki heill. Hvað finnst þér um Indefence gaurinn sem búið var að verðlauna með sæti í bankaráði Seðlabankans (í boði Framsóknar) en varð að segja af sér vegna gjaldeyrisbrasks. Ætli hann hafi verið með þekkingu á hagmálum? Eða menntaður í þeirri deild?
Er ekki betra að hafa heiðarlega manneskju í forsæti heldur en siðspilltan Gög eða Gokke. Eru þeir með þekkingu á hagmálum?
06.02 2010 kl.01:53
Slóð
Bottom line-ið í þessu öllu er sá að það á sér stað valdabarátta á Íslandi. Og í henni skal öllu til tjaldað. Icesave er einn liður í aðgerð gamla valdsins til að ná aftur völdum, önnur aðgerð er sú að það er algjörlega opið skotleyfi á forsætisráðherra, og skiptir engu hvað sé sagt um hana ef það nær að sverta hana eða ríkisstjórnina á einhvern hátt.
OG ÞAÐ ER FÁRÁNLEGT AÐ FÓLK SJÁI EKKI Í GEGNUM ÞAÐ MOLDVIÐRI SEM VERIÐ ER AÐ ÞYRLA UPP.
06.02 2010 kl.02:01
Slóð
@guy
Byrjaðu bara að lesa:
http://www.island.is/endurreisn
láttu mig vita þegar að þú ert kominn í 5! 10! 50!!!
06.02 2010 kl.10:00
Slóð
Svarið er einfalt:
Já, konan er fjölmiðlafælin!
Slíkt fólk er ekki til forystu fallið frekar en þeir sem eru fjölmiðlasjúkir!
06.02 2010 kl.10:49
Slóð
Það sem við Íslendingar þurftum eftir hrunið var heiðarlegur stjórnmálamaður og það er Jóhanna, enda varð Samfylkingin stærsti flokkurinn eftir kosningar þrátt fyrir sofandahátt fyrir hrunið og því má þakka Jóhönnu að stærstum hluta vegna þess trausts sem fólk hefur á henni sem heiðarlegum dugnaðarforki.
Vonandi er það enn þannig að flestir setji heiðarleika efst á lista yfir kosti stjórnmálamanns og hingað til höfum við ekki haft nógu marga gæddum þeim kostum.
06.02 2010 kl.13:02
Slóð
Ég ber virðingu fyrir Jóhönnu og veit að hún er að hugsa um hagsmuni okkar allra sem þjóð. Hennar tími kom eins og marfrægt er, en hennar tími er líka nú runninn og hún þarf að átta sig á því.
06.02 2010 kl.15:50
Slóð
Mikið geta fjölmiðlamenn verið uppteknir af sjálfum sér. Eini mælikvarðinn sem þeir vilja nota um frammistöðu stjórnmálamanna er fjölmiðlaframganga.
Mín vegna gætum við haft forsætisráðherra sem kæmi sáralítið fram í fjölmiðlum svo lengi sem hann vinnur heiðarlega og vinnur að góðum málum fyrir þjóðina. Þetta virkar ágætlega fyrir Svisslendinga t.d.
Akkúrat núna er eftirspurn meiri en framboð af heiðarlegum stjórnmálamönnum. Eðlilegt að Jóhanna njóti þess að hafa unnið af heiðarleika í sínum störfum.
Ef það er virkilega að gerast að sættir séu að takast í deilunni við Breta og Hollendinga væri það alveg fáránleg tímasetning að fara akkúrat núna í herskáa fjölmiðlaherðferð gegn þeim.
06.02 2010 kl.16:02
Slóð
Guðana bænum hættiði að gagnrýna Jóhönnu svona, kjánarnir ykkar.