„Þú hefur furðulegan skilning á fréttum og í raun óskijlanlegan,“ segir Kolbeinn Óttarsson Proppé, blaðamaður á Fréttablaðinu, í athugasemd sem hann skrifar á bloggsíðu Stefáns Pálssonar sagnfræðings og formanns Hernaðarandstæðinga í dag. Stefán bloggaði um áformin að breyta húsi gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar í hótel og lét í ljósi efasemdir um þau. Hann telur að Fréttablaðið gangi með fréttaflutningi af málinu erinda þeirra manna sem hefja vilja þessar framkvæmdir.
Mennirnir „eiga augljóslega greiða leið á síður Fréttablaðsins. Í dag birtist mikil frétt um hversu frábært þetta hótelverkefni sé og hversu mikilvægt það sé að knýja það í gegn með miklum hraða,“ skrifar Stefán.
Kolbeinn er ósáttur við þetta. Hann tekur upp hanskann fyrir blaðið í athugasemd við færslu Stefáns og segir að þó að það þyki fréttnæmt hvað gera eigi við “eitt af fimm flottustu húsunum í Reykjavík” eins og Stefán kalli það, sé „fráleitt“ að túlka það sem frétt um hversu frábært það verkefni sé.
„Og ekki skil ég hvernig þér tekst að lesa það úr fréttum um nýjan skóla sem stofna átti í þessu húsi – að blaðamönnum finnist sú hugmynd æðisleg. Ég skrifaði margar fréttir um það og skil ekki hvað þú ert að fara með svona bulli. Þarna fellur þú í þá gryfju að líta svo á að með umfjöllun um eitthvað sem þér hugnist ekki sé tekin afstaða með framkvæmdinni. Fráleit hugsun,“ skrifar Kolbeinn.
Þeir Stefán Pálsson og Kolbeinn Óttarsson Proppé blogga báðir á kaninka.net og eru gamlir baráttufélagar úr VG, stóðu meðal annars saman að vefritinu Múrnum á sínum tíma. Stefán er enn á kafi í póltiíkinni, en Kolbeinn hefur lýst því yfir að hann hafi alveg dregið sig út úr henni.
Burtséð frá hversu lítil tíðindi eru í þessari frásögn hefði „Krullhærðir kýta“ verið miklu skemmtilegri fyrirsögn. „Fréttir“ unnar upp úr Facebook og kommentakerfum bloggsíðna eru ekki merkilegar.
“Þú hefur furðulegan skilning á fréttum og í raun óskijlanlegan.“
Óskiljanlegur skilningur sumsé – gaman af því!
Ef Fréttablaðið er gómað við að flytja fréttir í þágu einhverra sem vilja gera eitthvað sérstakt og hratt, eru það fréttir.
Mér fannst fréttin skrýtin, þegar ég sá hana, en held þó að hér sé um venjulega „kranablaðamennsku“ að ræða. Þ.e. hagsmunaaðilar senda tilbúin skrif og mynd til blaðsins sem birtir óbreytt.
Vá, þvílíkar deilur maður. Ætli þeir verði einhvern tímann vinir aftur. Hvernig eiga þeir að fyrirgefa hvorum öðrum. Eigum við að hringja í Dr. Phil?
Haha, ekki þarf að segja meira en það sem Ari sagði.
Þessi moli Orðsins nær því ekki einu sinni að vera áhugavert föstudagsléttmeti. Var einhver í blautum hádegismat, eða?
Blaðamaðurinn hefur sömuleiðis óskiljanlegan skilning á fréttum. Hverjir eiga Álftavatn ?
Hefur blaðamaðurinn skrifað margar fréttir um raunverulega eigendur hússins eða hefur honum alltaf tekist að horfa fram hjá þeim? Á húsið sig sjálft?