Góð vísa forsetans

Þeir eru margir gullmolarnir í bókinni Þeirra eigin orð eftir Óla Björn Kárason þar sem safnað er saman ýmsum eftirminnilegustu ummælum útrásartímans. Í bókinni er oftast vitnað í þá fjandvini Davíð Oddsson og Jón Ásgeir Jóhannesson,en við sögu koma margir þekktir álitsgjafar, stjórnmálamenn og kaupsýslumenn.
Og auðvitað forseti Íslands. Margt það skemmtilegasta sem er að finna í bókinni er komið frá Ólafi Ragnari Grímssyni. Við opnun Kaupþings bankans í Lúxemborg 18. apríl árið 2000 lét forsetinn þessi orð falla:
Ég vona að árangur ykkar verði ungum Íslendingum sönnun þess að það er hægt að vera í senn góður Íslendingur og glæsilegur fulltrúi þess besta sem gerist í veröldinni, að tækifæri Íslendinga í hinu nýja hagkerfi heimsins jafnast á við það besta sem gerist í öðrum löndum, að við getum svo sannarlega sameinað að vera í senn sjálfstæð þjóð og raunverulegir heimsborgarar í hugsun, viðskiptum og framgöngu allri.
Þess er ekki getið í bókinni að fimm dögum áður hafði forsetinn mætt á samkomu hjá stoðfyrirtækinu Össuri og sagt:
Ég vona að árangur ykkar verði ungum Íslendingum sönnun þess að það er hægt að vera í senn góður Íslendingur og glæsilegur fulltrúi þess besta sem gerist í veröldinni, að tækifæri Íslendinga í hinu nýja hagkerfi heimsins jafnast á við það besta sem gefst í öðrum löndum. Við getum svo sannarlega sameinað að vera í senn sjálfstæð þjóð og raunverulegir heimsborgarar í hugsun, framleiðslu og viðskiptum.
Forseti Íslands hefur greinilega verið ánægður með þessi hrósyrði sín í garð útrásarmanna úr því að hann notaði þau óbreytt tvisvar í röð. Góð vísa er víst aldrei of oft kveðin!