Sendu Orðinu póst
ordid@eyjan.is
19.08 2009 - 32 ummæli »

Hámark ósvífninnar

Orðið á götunni er að tilboð stjórnenda Straums fjárfestingabanka til kröfuhafa um að fá í eigin vasa milljarða króna fyrir að innheimta eignir bankans sé það ósvífnasta sem heyrst hefur frá því byrjað var að fletta ofan af spillingunni og græðginni í bönkunum eftir hrunið í haust.

Ummæli forstjóra Straums, Óttars Pálssonar, um að ‘utanaðkomandi lögfræðingar’ hafi sagt tilboðið ‘í fullu samræmi við það sem gengur og gerist’ þykja lýsa meiri veruleikafirringu gagnvart íslensku samfélagi en hægt sé að trúa eftir allt það sem á undan er gengið.

Meðal stórra kröfuhafa eru lífeyrissjóðir landsmanna.

Orðið á götunni er að grípi ríkisstjórnin ekki með afdráttarlausum hætti inn í þetta mál sé hætt við að það sem hún eigi eftir af trúverðugleika glatist.




Mínar stillingar